Bókið einkaskoðun

    HEKLUREITUR - Laugavegur 170 kominn í sölu

    Uppbygging á Heklureit heldur áfram og til viðbótar við Laugaveg 168 er húsið við Laugaveg 170 komið í sölu. Fjölbreyttar stærðir íbúða með einstöku útsýni.

     

    Hægt er að skoða glæsilegar sýningaríbúðir á Laugavegi 168 og er opið hús alla laugardaga og sunnudaga frá kl: 13-14. Einnig er hægt að panta einkaskoðun alla daga vikunnar.

     

    Bókið einkaskoðun

    Nýjar íbúðir í miðborginni

    Verið velkomin og berið saman gæði innréttinga, frágang íbúða og staðsetningu. Fallegar íbúðir af fjölbreyttum stærðum með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum. Bókið einkaskoðun hjá fasteignasölum okkar.

    Afhending íbúða er þegar hafin að Laugavegi 168 en afhending við Laugaveg 170 er áætluð frá október til desember 2026.

    Glæsilegt úrval íbúða í miðborginni við helstu stofnbrautir borgarinnar.

    Skoða íbúðir

    Bílageymsla

    Fjöldi einkastæða fylgja íbúðum – engin leigustæði

    Undir húsunum er tvöfaldur bílakjallari með fjölda einkabílastæða. Kjallarinn er búinn rafstýrðri hurð með bílnúmerastýringu, öryggismyndavélum og hreyfiskynjurum. Aðgangsstýring tryggir að aðeins viðurkenndir notendur komist að.

    Gengið verður frá dreifingu fyrir rafhleðslustöðvar við öll bílastæði og því hægt með fljótum hætti að setja upp rafhleðslustöðvar við öll einkastæði.
    Aðkeyrsla er frá tveimur stöðum í bílakjallarann, annars vegar frá Laugavegi og hins vegar frá Nóatúni.

    MIÐSVÆÐIS

    Staðsetningin tryggir góðar tengingar við helstu stofnbrautir, Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut, auk þess mun 1. áfangi Borgarlínu liggja fram hjá húsinu. Þá má á göngu komast til fjölþættrar menningar með möguleika á að næra bæði anda og efni. Þarna búa íbúar við munað miðborgarbragsins en utan skarkala miðbæjarins. Hönnun hússins miðar að því að sólar njóti jafnt í skjólgóðum inngarðinum og á þakgörðum á efri hæðum. Húsið trappar sig í þeim tilgangi niður og veitir holtið til suðurs skjól en hleypir að birtu og sól. Húsið er 8 hæðir til norðurs að Laugavegi en stallast niður í 2 hæðir við Brautarholt til suðurs.

    ÚTSÝNI

    Til norðurs blasir Esjan í allri sinni dýrð. Og það eru viss gæði fólgin í því að fá að sjá Esjuna í öllum sínum fjölbreytileika, litbrigðum og síbreytilegri fegurð. Fjall, eða reyndar fjallgarður, sem hefur gefið lagahöfundum og listmálurum innblástur til að fremja sín bestu verk ásamt því að fanga aðdáun og augu borgarbúans.

    Upp af Engey á Faxaflóa má sjá Akrafjall og Skarðsheiði sem eru að sjálfsögðu eins og fjólubláir draumar og á góðum dögum glitrar Snæfellsjökull á haffletinum í fjarska. Til suðurs breiðir borgin úr sér og til vesturs, á Skólavörðuholti, blasir við eitt helsta kennileiti Reykjavíkur, Hallgrímskirkja.

    Sigurður Gunnlaugsson

    fasteignasali
    sigurdur@fstorg.is
    Gsm. 898-6106

    Margét Rós Einarsdóttir

    fasteignasali
    margret@fstorg.is
    Gsm. 856-5858

    Ragnar Kristján Guðmundsson

    fasteignasali
    ragnar@fstorg.is
    Gsm. 844-6516

    Aðalsteinn Bjarnason

    fasteignasali
    adalsteinn@fstorg.is
    Gsm. 773-3532

    Þóra Þrastardóttir

    fasteignasali
    thora@fstorg.is
    Gsm. 822-2225